„Þann 30.júní 1954 stóð ég á tröppunum á æskuheimili mínu á Grenimel 13 og horfði á sólmyrkvann sem var magnað sjónarspil,“ segir Rúnar Gunnarsson listaljósmyndari sem reyndi aftur í dag, á sama stað, en skyggni var ekki jafngott:
„Ekki var von á slíku aftur fyrr en árið 2026 sem var þá í nánast óendanlegri framtíð, ég yrði þá á níræðisaldri eða farinn. En nú er ég hér aftur á sama stað 82 ára gamall og bara hress miðað við aldur og fyrri störf.“




