
Stærsta litla bæjarhátíð í heimi hefst á Reykhólum í næstu viku
Reykhóladagar 2026 fara fram dagana 12.–16. ágúst og bjóða upp á fimm daga af tónlist, fjölskylduskemmtun, íþróttum, menningu, mat, sveitastemningu og þeirri einstöku samheldni sem aðeins lítið samfélag getur skapað.
Hátíðin hefst á einstakri náttúruupplifun þegar almyrkvi sólar verður yfir Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst. Af því tilefni verða sérstakir Sólmyrkvatónleikar í Bjarkalundi þar sem Bríet stígur á svið eftir að Nói Klose hefur sett tóninn fyrir kvöldið. Þar með hefst ein fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins.
„Við viljum að gestir upplifi Reykhóla eins og við þekkjum þá – samfélag þar sem allir eru velkomnir, dagskráin er fjölbreytt og stemningin byggist á samveru, gleði og þátttöku. Reykhóladagar eru hátíð sem íbúarnir skapa sjálfir og gestir verða hluti af um leið og þeir mæta,“ segir Embla Dögg Bachmann, framkvæmdastjóri Reykhóladaga. Embla hefur stýrt undirbúningi hátíðarinnar síðustu ár og var á síðasta ári valin íbúi ársins á Reykhólum fyrir framlag sitt til samfélagsins.





