Það fer nú að líða að því að hið sögufræga hús Sjónarhóll – Eyrargata 46 – á Eyrarbakka, Laugabúð, verði auglýst til sölu. Ekki hefur enn verið haft samband við fasteignasala og ekkert verðmat hefur verið gert á húsinu.

Guðlaugur Pálsson kaupmaður rak verslun sína þarna undir eigin nafni í 76 ár, eða frá desember 1917 og fram í desember 1993, þegar hann lést tæplega 98 ára að aldri.
–
„Verslunarrekstur Guðlaugs var nær einstakur á landsvísu og jafnvel þótt víðar væri leitað. Í fyrsta lagi vegna þess hve langt tímabil hann spannaði og í öðru lagi vegna þess háa aldurs sem Guðlaugur náði,“ segir Magnús Karel Hannesson á Eyrarbakka sem rekur nú verslunina sem ferðamannaverslun yfir sumartímann. Fyrsti viðskiptavinur Guðlaugs 4. desember 1917 var sr. Gísli Skúlason á Stóra-Hrauni, sóknarprestur Eyrbekkinga og Stokkseyringa. Sr. Gísli keypti eina litla vasabók á 22 aura. Heildarsalan þennan fyrsta verslunardag Guðlaugs Pálssonar var 28 kr.
Grunnflötur hússins er tæpir 45 m2 en heildarflatarmál er tæpir 74 m2 nettó, hæð, ris og kjallari.



