Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hefur undanfarna daga verið í opinberri heimsókn á Íslendingaslóðum í Kanada ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttir, sem einnig starfar í stjórnarráðuneytinu sem aðstoðarmaður ráðherra.
Hjónunum er vel tekið og ekið um í opnum bíl að amerískum sið. í gær heimsóttu ráðherrahjónin Mannréttindasafnið í Winnipeg og Guðbjörg Ingunn var hrifin:

„Án efa einn af áhrifamestu stőðum sem ég hef komið á. Þetta er ekki safn sem maður „skoðar“. Þetta er safn sem maður upplifir. Þar er farið yfir sögu mannréttinda, óréttlætis, fordóma og hugrekkis og minnt á að mannréttindi eru aldrei sjálfgefin. Þau þurfa stöðugt að vera varin og ræktuð. Sérstaklega áhrifamikill var kaflinn um frumbyggja Kanada og mikilvægi sannleika, sátta og virðingar. Safnið leggur mikla áherslu á að skapa samtal frekar en að gefa einföld svör.
„All human beings are born free and equal in dignity and rights.“
Kannski er það einmitt kjarni alls. Að við gleymum því aldrei að á bak við allar tölur, fréttir og skoðanir eru manneskjur.“