Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra er 67 ára í dag og því orðin eldri borgari með öllu sem því fylgir.
Inga er fædd árið 1959 á Ólafsfirði næstyngst fjögurra systkina. Inga var blind fyrstu tvö æviár sín vegna skemmda í heilastöð þar sem henni voru ekki gefin rétt sýklalyf þegar hún sýktist af hlaupabólu og heilahimnubólgu Hún er í dag lögblind með 10% sjón. Inga ólst upp á fátæku heimili á Ólafsfirði og segir pólitísk viðhorf sín hafa litast af því.





