Minnst þrjár smurstöðvar hafa lagt upp laupana í Reykjavík á síðustu mánuðum. Sú fjórða lokar eftir sumarfrí starfsmanna sem hófst um helgina en það er sú viðfræga stöð við Suðurlandsbrau þar sem sjónvarpsþáttaröðin Næturvaktin var tekin upp og varð víðfæg fyrir.
Það er gríðarleg fjölgun rafbíla í borginni sem á þarna stærstan hlut að máli. Rafbíla þarf ekki að smyrja og munar um minna þegar þeir eru líklega orðnir helmingur alls bílaflotans í borginni.





