„Undanfarnar vikur hafa mér boðist mörg spennandi verkefni, þar á meðal bæjarstjórastöður og önnur ábyrgðarstörf,“ segir Valdimar Víðisson fyrrum bæjarstjóri Framsóknar í Hafnarfirði sem hvarf út stóli bæjarstjóra eftir síðustu kosningar. Hann hefur hins vegar þegið starf sem skólastjóru í Húsaskóla í Grafarvogi tímabundið í eitt ár.
–
„Ástæðan fyrir því að ég tók ekki að mér verkefni eins og bæjarstjórastarf í öðru sveitarfélagi er sú að ég vil ekki hverfa frá verkefnum mínum í Hafnarfirði. Ég var kosinn af Hafnfirðingum til að vinna fyrir Hafnfirðinga og það mun ég gera áfram. Samhliða starfinu í Húsaskóla mun ég áfram sinna starfi mínu sem bæjarfulltrúi og vinna af heilindum fyrir Hafnfirðinga, eins og ég hef ávallt gert.“
–
Valdimar heffur 20 ára reynslu sem skólastjórnandi, fyrst í Grenivíkurskóla og síðan í Öldutúnsskóla í heimabæ sínum, Hafnarfirði.





