Svona leit Hamborgarabúllan í Geirsgötu út áður en Tommi á Búllunni settist þar að í apríl 2004.
Þetta er Café Skeifan sem bauð upp á léttan árbít og smábita af ýmsu tagi, jafnvel kótilettur. Í baksýn má sjá Stálsmiðjuna, áður Slippfélagið og í Slippnum er Sjávarborgin GK 60, smíðuð á Akureyri og sökk svo við strendur Afríku 2016.





