HomeGreinarGALDRAFÁR Á STRÖNDUM - RUT OG JÓHANNA Á HÓLMAVÍK

GALDRAFÁR Á STRÖNDUM – RUT OG JÓHANNA Á HÓLMAVÍK

Sumir reyndu að klekkja á óvinum sínum með illkvittinni og yfirnáttúrulegri sendingu…Nú er að njóta sendinganna á veggjunum og reyna að átta sig á sendanda og viðtakanda.

Rut Bjarnadóttir og Jóhanna V Þórhallsdóttir opna sýningu í Smíðahúsinu á Hólmavík laugardaginn 1. ágúst 2026 kl 14-17. Yfirskrift sýningarinnar er, SENDING. Saga Strandasýslu er tengd því mikla galdrafári sem fór um Evrópu á miðöldum.

Fátækt fólk reyndi að hafa áhrif á náttúruöflin og örlögin með því að kalla óræð og dularfull öfl til fulltyngis við sig. Lífsbaráttan var erfið og miskunnarleysi forlaganna viðbrugðið. Alls kyns ráða var beitt. Menn fóru með torskildar galdraþulur, ristu galdrastafi og rúnir og reyndu þannig að breyta tilverunni. Þegar reynt var hafa áhrif á aðra mannveru til góðs eða ills var beitt svokölluðum sendingum. Sumir reyndu að klekkja á óvinum sínum með illkvittinni og yfirnáttúrulegri sendingu. Aðrir beittu sendingum til góðs og reyndu að snúa hug einhvers til ásta eða lækna fólk. Sendingar gátu því verið af ýmsum toga.

Venjulega mistókust þessar tilraunir til að breyta gangi tilverunnar með göldrum. Allmargir galdramenn voru teknir af lífi á öldum áður og rit þeirra og tól brennd á báli. En hvað varð um hina sem enginn fann og sakfelldi? Hvernig lauk þeim galdri sem aldrei var vitað um? Hvað varð um allar þær yfirskilvitlegu sendingar sem fóru útí loftið en rötuðu aldrei á áfangastað? Eru þær enn á sveimi?

Listakonurnar Rut Bjarnadóttir og Jóhanna V. Þórhallsdóttir reyna með þessari sýningu í Smíðahúsinu Hólmavík að fanga á dúkinn eitthvað af þessum sendingum sem enn eru á sveimi. Sumar þeirra eru bólgnar af illkvitni en aðrar fullar af kærleika,umhyggju og ást. Sendingin hafði á sér ótal andlit. Henni svipar þannig til listarinnar sem getur brugðið sér í allra kvikinda líki. Hún hefur mörg ólík andlit eins og sending galdramanns sem beint er út í regnvota sveit. Listin er eilíf á sama hátt og galdurinn vegna þess að góð list er full af galdri, fjölkynngi og forneskju, en er alltaf ný og fersk. Nú er að njóta sendinganna á veggjunum og reyna að átta sig á sendanda og viðtakanda.

TENGDAR FRÉTTIR

KATTÞRIFINN KÖTTUR Í SUNDI

Þessi rauðbrúni köttur er orðinn eins og fastagestur í Vesturbæjarlauginni, mætir á hverjum degi um þrjúleytið og horfir löngunaraugum á innganginn. En lætur þar...

FRESTAÐI SJÖTUGSAFMÆLINU UM ÞRJÁ MÁNUÐI EFTIR INNTÖKU Á NAD+

Lífsþyrstur íbúi í 101 Reykjavík, hugmyndaríkur og snjall, frestaði sjötugsafmæli sínu, sem átti að vera eftir nokkta daga, um þrjá mánuði, Ástæðan er inntaka...

DORRIT SLEIKIR SÓLINA Í SKUGGA SKILNAÐAR

Dorrit Moussaieff nýtur lífsins á grísku eyjunni Mykonos með vinum sínum í skugga skilnaðar við Ólaf Ragnar sem á meðan berst gegn yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu...

LAUGABÚÐ Á EYRARBAKKA TIL SÖLU

Það fer nú að líða að því að hið sögufræga hús Sjónarhóll – Eyrargata 46 – á Eyrarbakka, Laugabúð, verði auglýst til sölu. Ekki...

NO PARKING

Þetta merki þýðir "Bannað að leggja" á öllum tungumálum, jafnvel esperanto. Ökumaður þessa ferðabíls kaus þó að leggja honum í lítilli þvergötu í miðbæ...

RÁÐHERRAHJÓN Á ÍSLENDINGASLÓÐUM Í KANADA

Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra hefur undanfarna daga verið í opinberri heimsókn á Íslendingaslóðum í Kanada ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttir, sem...

VIÐREISN AUGLÝSIR GUINNESS

"Ég er frjálslyndismegin í þessu," segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í auglýsingu frá Viðreisn á samfélagsmiðlum. Svona lítur auglýsingin út.

INGA SÆLAND ELDRI BORGARI – 67 ÁRA Í DAG

Inga Sæland mennta-og barnamálaráðherra er 67 ára í dag og því orðin eldri borgari með öllu sem því fylgir. Inga er fædd árið 1959 á...

SMURSTÖÐVAR LEGGJA UPP LAUPANA VEGNA RAFBÍLA

Minnst þrjár smurstöðvar hafa lagt upp laupana í Reykjavík á síðustu mánuðum. Sú fjórða lokar eftir sumarfrí starfsmanna sem hófst um helgina en það...

PENINGAR TIL SÖLU Í KÓPAVOGI

Hægt er að kaupa gamla, íslenska seðla í Antikbúðinni í Auðbrekku 4 í Kópavogi. Það er hins vegar ekki hægt að kaupa neitt fyrir...

CAFÉ SKEIFAN SEM VARÐ BÚLLAN

Svona leit Hamborgarabúllan í Geirsgötu út áður en Tommi á Búllunni settist þar að í apríl 2004. Þetta er Café Skeifan sem bauð upp á...

FYRRUM BÆJARSTJÓRI HAFNAR TILBOÐUM UM BÆJARSTJÓRASTÖRF

"Undanfarnar vikur hafa mér boðist mörg spennandi verkefni, þar á meðal bæjarstjórastöður og önnur ábyrgðarstörf," segir Valdimar Víðisson fyrrum bæjarstjóri Framsóknar í Hafnarfirði sem...

Sagt er...

Ævintýramaðurinn Vilhjálmur Svan býður til veislu og sendi út boðskort með stæl.

Lag dagsins

Whitney Houston (1963-2012) hefði orðið 63 ára í dag. Hún hlaut með réttu viðurnefnið "The Voice" og og seldi 220 milljónir hljómplatna á ferlinum. https://www.youtube.com/watch?v=3JWTaaS7LdU