Einn vinsælasti viðkomustaður sóþyrstra á góðviðrisdögum í Reykjavík er veitingastrætið á milli Pósthússtræti og Ingólfstorgs þar sem minnst fjögur veitingahús eru með útiveitingar.
Aðrir veitingamenn líta strætið öfundraugum þegar sólin skín því þarna er þéttsetinn bekkurinn og komast færri að en vilja. Kalla þeir strætið „Sprúttlínuna“ því flestir gestanna eru að fá sér.
Reyndar heitir strætið Thorvaldsensstræti eftir Bertel Thorvaldsen myndhöggvara en stytta af honum stóð lengi á Austurvelli þar sem Jón Sigurðsson stendur nú.





