Athygli margra sem fylgdust með beinni útsendingu frá undanúrslitaleik Aftureldingar í Mosfellsbæ og Fylkis í Árbæ í Mjólkurbikarnum á dögunum furðuðu sig á því að allir leikmenn Aftureldingar voru mertir Birgisson á baki.
„Hver er þessi Birgir,“ spurði eiginkona manns sem var að fylgjast með.
„Hann er úr Mosó,“ svaraði maðurinn.
„Á hann alla þessa stráka?“ spurði konan og fór aftur inn í eldhús.





