Heilbrigðisráðherra hefur skipað nýja stjórn Landspítalans. Regína Ásvaldsdóttir fyrrum bæjarstjóri í Mosfellsbæ og nú varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar er formaður og Birna Einarsdóttir fyrrum bankastjíri Íslandsbanka varaformaður.
Athygli vekur að enginn fulltrúi sjúklinga er í stjórninni og þykir það skjóta skökku við enda þeir helstu skjólstæðingar spítalans.




