Talið er að Fjölmiðlanefnd hljóti að gera kröfu um að Landskjörstjórn skrái sig sem fjölmiðil eins og margt annað sem bærist á netinu ef marka skal fréttaviðtal í Ríkissjónvarpinu við forsvarsmann Netvís sem er opinber miðstöð um félagslegt netöryggi og miðlalæsi og heyrir undir Fjölmiðlanefnd. Starfsmenn eru sex.
„Netvís hefur opnað nýja tilkynningagátt þar sem almenningur getur látið vita ef hann verður var við upplýsingar á netinu sem gætu flokkast sem óeðlileg afskipti af komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer í lok ágúst,“ Stefanía Ragnarsdóttir hjá Netvís og bætir við að stofnunin verði á vaktinni.





