HomeGreinarBRJÁLUÐ BIÐRÖÐ Í COSTCO

BRJÁLUÐ BIÐRÖÐ Í COSTCO

Vonsvikinn viðskiptavinur sendir skeyti:
–
Biðraðirnar tvær í Costco náðu inn að hinum enda hússins síðastliðinn laugardag. Fullir innkaupavagnar siluðust áfram á hraða snigilsins.
–
Vissulega má búast við mannfjölda í þessari vinsælu verslun á almennum frídegi. Andlitið datt þó af flestum þegar þeir komu fyrir hornið og sáu að af 12 afgreiðslukössum voru aðeins 6 þeirra mannaðir. Það er litlu meira en á venjulegum þriðjudegi.
–
Þegar Costco opnaði fyrir 9 árum flykktust landsmenn í búðina. Vissulega voru raðirnar langar, en þá var afgreitt á hverjum kassa. Jafnt og þétt virðist þessi þjónusta hafa dregist saman. Samt virðist ekki vanta starfsfólkið í Costco, því út um allt eru mannaðar smakkstöðvar.
–
Costco á Íslandi hefur ekki brugðist við þessari eyðslu á tíma viðskiptavina með sama hætti og Costco verslanir erlendis. Þar er víðast hvar búið að setja upp sjálfsafgreiðslukassa og „scan and go“ lausn svipað þeirri sem Bónus og Krónan bjóða upp á.
–
Auðvitað geta viðskiptavinir einfaldlega sleppt því að versla í Costco um helgar og sparað sér leiðindin. En fyrir margt vinnandi fólk er enginn annar tími í boði.
TENGDAR FRÉTTIR

VIÐVERA OG VIÐHALD Í KEFLAVÍK

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Ísbjörg ritari segir í viðtali að hún sé mjög opin fyrir aukinni viðveru erlendra hermanna á Íslandi. En þeir þurfi líka að...

SKOPMYND Í JÓLAPAKKANN.

Skorað hefur verið á Halldór Baldursson skopmyndateiknara að gera veggspjald af mynd dagsins í Vísi í dag og innramma til jólagjafa. Ef marka skal...

FYRSTI BÍTLABÍLLIN ´62

Bítlarnir Lennon, McCartney og George Harrison stilla sér hér upp við fyrsta bíl George sem var blár Ford Anglia með númeraplötunni 935 MPF. Myndin...

ALVÖRU GÖTUSTELPA OG ÓLAFUR RAGNAR Á HVERFISGÖTU

Fyrrum foreti Íslands hefur líkt núverandi utanríksráðherra við götustelpu í tali. Jóna Fanney Friðriksdóttir reis með réttu undir nafninu götustelpa á Hverfisgötu fyrir skemmstu: - Í...

ARNALDUR BÝÐUR Í BÍÓ

Forlagið fagnar stórum áfanga í útgáfusögu Arnaldar Indriðasonar sem verið hefur á toppnum í 30 ár heima og erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar...

BÖLVUN GRÆNA LITARINS

"Ég hvet alla vini mína - liðsfélaga og mótherja - sem hafa orðið vitni af hjátrúnni/bölvuninni sem er í ætt minni varðandi græna litinn...

VIÐSKIPTARÁÐ ER EKKI Í VINSÆLDALEIT

Vinsæll viðskiptavinur sendir póst: - Viðskiptaráð er líklega einu hagsmunasamtökin hér á landi sem óttast ekkert að stíga óþyrmilega á tær annarra í þjóðfélaginu en eigin...

HVER ER KONAN?

Í hugum flestra leit hún ekki svona út - var mun glæsilegri. Örlög hennar voru ömurleg og þessi mynd er teiknuð af AI samkvæmt...

SLEPPIÐ PARÍS OG RÓM – SNÆFELLSNES ER STAÐURINN

Ferðavefurinn Travel+Leisure hvetur ferðamenn til að sleppa París og Róm að sinni og birtir lista yfir níu borgir í Evrópu sem eru ákjósanlegri um...

ADHD Á EGILSSTÖÐUM

Menntaskólinn á Egilsstöðum hlaut hvatningarverðlaun ADHD samtakanna í ár fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu nemenda með ADHD. Formaður ADHD samtakanna, Vilhjálmur Hjálmarsson og...

SAGT UPP Á HAGSTOFUNNI – ÍSLANDSMEISTARI Í ANDSTÖÐU VIÐ ESB

Að gefnu tilefni er þesssi frétt frá 4. júní endurbirt hér nú þegar Hirti hefur verið sagt upp starfi sínu á Hagstofunni án viðhlítandi...

TÓMAS OG RAGNHEIÐUR

Ragnheiður Harpa Leifsdóttir er handhafi Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar í ár fyrir ljóðabókina Deig. Dómnefndin segir: "Deig er ljóðabók sem fjallar um hráefni lífsins, fegurðina í...

Sagt er...

Inga Bjarnason leikstjóri troðfyllti Tjarnabíó síðdegis í gær í útgáfuhófi í tilefni af eigin ævisögu - Einfætta ballerínan. Hvert sæti skipað og jafnmargir stóðu...

Lag dagsins

Kanadíska söngkonan Joni Mitchell er afmælisbarn dagsins (83). Engin söngkona eða lagasmiður hefur komist með tærnar þar sem hún hefur haft hælana á ferli...