„Fimmtudaginn 23. júlí kl. 17.00 fögnum við útgáfu bókarinnar Flærðarsól – Óður til dauðans eftir Úlfar Þormóðsson,“ segir Pétur Már Ólafssson útgefandi í Veröld og heldur áfram:
„Úlfar var djúpt sokkinn í að setja saman marglaga minningar þegar hann var skyndilega úrskurðaður dauðvona. Það bætti nýrri vídd við verkið – lífið breytist þegar dauðinn er afhjúpaður þar sem hann liggur í leyni. Flærðasól er líklega síðasta bók Úlfars. Hlökkum til að sjá ykkur í Eymundsson á Skólavörðustíg!“






