Tikynning frá Tían bifhjólaklúbbi Norðuramts:
–
Bifhjól brann til kaldra kola á Hámundarstaðahálsi skammt frá Dalvík í gær.
Engann sakaði en eigandinn, Ómar Geirsson, varð var við einhverja bilun í hjólinu og ákvað að stöðva farartækið þegar í stað á veginum og athuga hvað væri að. Skömmu seinna braust út eldur í hjólinu og brann hjólið án þess að neitt hafi hægt verið hægt að gera.
Bifhjólið Honda Goldwing var fornhjól árgerð 1988 en Ómar var nýlega búinn að fjárfesta í því og var að koma með það úr ástandskoðun áður en óhappið varð.





