„Enskan er, smám saman, að breytast í mörg tungumál,“ segir Þorsteinn Eggertsson dægurskáld og nýbakaður Fálkaorðuhafi. Hann nefnir dæmi:
„Framburður á bresku og amerísku er ólíkur. Td. er orðið “better“(betra) borið fram svipað og „berör“ víða í Bandaríkjunum en svipað og „bettah“ víðast hvar á Englandi. Orðaforðinn er líka orðinn ólíkur. Íbúð og lyfta eru apartment og elevator í Ameríku en lift og flat í Bandaríkjunum.“




