„Vegna frétta um hlýindi og hita á undaförnum dögum er rétt að vara við þremur mælum á vegum Veðurstofunnar norðaustan- og austanlands. Þeir mæla ekki sem best við staðalaðstæður eins og það er kallað,“ segir Einar Sveinbjörnsson sjálfstætt starfandi veðurfræðingur. og þetta eru staðirnir:
–
Húsavík
Hallormsstaður og
Végerisstaðir í Fnjóskadal.
„Allir eru þessir mælar umluktir skógargróðri. Á Hallormsstað og Végeirsstöðum hefur gróðurinn meira og minna fært mælistöðvarnar í kaf á síðustu 10-15 árum án þess að nokkuð hafi verið að gert.
Á Húsavík var veðurstöðin færð frá höfninni fyrir nokkru og upp í Skrúðgarðinn í miðjum bænum. Þar er hún „falin“ á milli trjáa.
Rétt að hafa þetta á bak við eyrað!
Svo eru flestar stöðvar Vegagerðarinnar ekki á graslendi, sem er ein krafan sem gerð er um staðalaðstæður við mælingar á hita.“





