Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur minnist vinar síns, Megasar, á kjarnyrtan hátt eins og henni er lagið:
„Magnús Þór allur. Margs að minnast, alveg frá því um 1970. Verkstæðið heima hjá honum. Strax einbeittur vilji til að fara algjörlega eigin leiðir og til þess að skapa í sífellu. Eins og hann segir sjálfur einhvers staðar í texta, á þá leið, að iðja á hverjum degi. Ég er þakklát fyrir hans góða kompaní og inspírasjón á tímum Listaskáldanna vondu, tala nú ekki um ráðlegginguna þegar ég sagðist ekki vera í stuði til að yrkja þann tímann. Svarið hans: “Það er bara af því að þú hefur ekki nóg amfetamín.”





