Össur Skarphéðinsson fyrrum ráðherra er mikill áhugamaður um HM og sleppir varla úr leik. Hann fylgist með leik Englands og Kongó á hverfiskránni ásamt vinum sínum og vildi fá hljóðið sett á leikinn á skjánum sem tekið hafði verið af í hálfleik. Gekk hann upp að barnum og ávarpaði bardömuna hátt og snjallt: „Madame, sound!“.




