Aðalheiður Sigríður Eysteinsdóttir opnar sýningu á laugardaginn í einu athyglisverðasta galleríi landsins, Smíðahúsinu í Norðurfjöru 3 á Hólmavík.
Aðalheiður hefur síðastliðin 30 ár aðallega unnið með timbur og timburafganga sem hún
hefur sett saman í allskonar fígúrur, fé og fólk og er landsþekkt fyrir. Nú er kominn tími á að gefa timburafgöngum nýtt líf sem stolt eplatré.
Innblástur að þessari sýningu sótti Aðalheiður til Danmerkur þar sem hún hefur dvalið undanfarin ár á sveitabæ þar sem eplatré standa í röðum sem má teljast framandi fyrir Íslending. Eplin sem hafa fallið til jarðar fyrir menn og skepnur að tína og njóta.

Sýningin í Hólmavík verður opin miðvikudaga til sunnudaga
frá 12.00 – 16.00.


