Næstkomandi laugardag klukkan 15:00 í Þulu á Hafnartorgi mun Karen Briem leiða gesti um sýningu sína Mamma hafði rétt fyrir sér.
Þar segir hún frá því hvernig sýningin varð til, frá einstökum verkum og efnisnotkun auk þess að velta upp spurningunni „hvað er heimili?“.



