„Ég bý í hönnunar hverfinu í Helsinki sem þykir afskaplega fínt hverfi. Þetta hús er gistihús fyrir heimilislausa og er í næstu götu við mig,“ segir Magnús Logi Kristinsson listamaður búsetttur í Finnlandi í framhaldi af vandræðum yfirvalda í Reykjavík með staðsetningu kaffistofu Samhjálpar:
„Það eru 73 litlar íbúðir í húsinu ásamt gufubaði og líkamsrækt í kjallaranum. Oft rekst maður á þetta ágætis heimilisfólk á götunum og aldrei eru vandræði og allir ánægðir. Þetta hús hefur verið fyrir heimilislaust fólk síðan 1893 það eru sko 133 ár.“




