Leikskóla í gámum hefur verið raðað upp við Geirsnef á meðan beðið er eftir byggingu nýs skóla fyrir nýja Vogahverfið þar rétt hjá. Sá skóli á að kosta 15 milljarða.

Fram hefur komið að mannvirkið eigi að verða 8.406 fermetrar að stærð og rúma samtals 720 nemendur. Þar verði 10 deilda leikskóli ásamt grunnskóla fyrir 1.-10. bekk, íþróttamiðstöð, félagsmiðstöð, frístundaheimili og göngu- og hjólabrú yfir Ketilbjarnarsíki sem tengist stígakerfi borgarinnar.
Gert er ráð fyrir að hönnun hefjist í byrjun 2027 og ljúki árið 2029. Framkvæmdir eru síðan áætlaðar á árunum 2029 til 2035.



