„Ég hafði einhvern veginn gefið mér að Megas væri höfundur hugtaksins „plastpokamaður“, en það er spurning hvort vinsældir hugtaksins megi frekar rekja til þessarar frábæru greinar Jóhönnu Þráinsdóttur frá 1979 í Vikunni,“ segir Stefán Pálsson sagnfræðingur sem grúskar víða og fann þetta gamla blað:

„Þetta viðtal við nokkrar einstæðar mæður sem rekja raunir sínar á stefnumótamarkaðnum og drullusokkunum með búslóðina í plastpoka sem troða sér inn á konur í viðkvæmri stöðu og lifa sníkjulífi. Þessi þarf að lesast samhliða Hvunndagshetjunni.“




