
Prestur Rússnesku rétttrúnaðrkirkjunnar blessaði nýjan bíl safnaðarmeðlims á bílastæði fyrir utan höfuðstöðvar kirkjunnar á Öldugötu í Vesturbænum í gær.
Slíkar athafnir eru tíðar í götunni og fara alltaf eins fram: Allar hurðir opnaðar, vélarhúdd og skott og svo bæessar presturinn bílinn að inan og utan með vígðu vatni sem dreift er með litlum fjaðurkústi. Með fylgir lágværi söngur viðstaddra, nokkurs konar humm.
Svo ekur eigandinn á nýblessuðum bíl sínum út í umferðina sæll og glaður.



