Kjötborg á Ásvallagötu er öll. Bræðurnir í búðinni hafa skellt í lás eftir að hafa staðið vaktina síðan 1981. En sagan er ekki öll sögð. Auðmenn í hverfinu slógu saman í púkk, keyptu húsnæðið og ætla að opna þar kaffihús, Café Kjötborg. Allir verða velkomnir.




