„Leiði er fæðingarstaður langtíma árangurs,“ segir Linda Pétursdóttir athafnakona og alheimsfegurðardrottning í hugleiðingu dagsins:
–
• Agi er leiðinlegur.
• Erfið vinna er leiðinleg.
• Að læra er ekki alltaf skemmtilegt.
• Að gera sömu hlutina dag eftir dag getur verið… leiðinlegt.
–
En akkúrat þar – í leiðanum, í endurtekningunni, í aganum – fæðist árangurinn.
Þannig að: Leyfðu þér að gera leiðinlegu hlutina. Flestir gera ekki leiðinlegu hlutina nógu oft og nógu lengi til að ná árangri.
–
Vertu einn af þeim fáu sem gerir það sem þarf, jafnvel þegar það er leiðinlegt.
Þannig verður þú einn af þeim fáu, sem nær langtíma árangri.



