Össur Skarphéðinsson hámhorfir á HM í fótbolta og gerir athugasemdir við með sínum hætti. Til dæmis gagnrýnir hann í íþróttafréttamenn RÚV fyrir aldursfordóma í lýsingum:
„Í tveimur HM-leikjum kvöldsins hafa lýsendur RÚV hrósað vörslu markvarða og talið merkilegar í ljósi aldurs þeirra. Vita þessir góðu fréttamenn RÚV ekki að markverðir í knattspyrnu eru einsog „gamlir“ stjórnmálamenn – verða því betri sem þeir eldast…“



