
„Ég er alltaf kátur þegar ég fæ að kjósa. Því þá get ég þegjandi og hljóðalaust valið það sem mig langar,“ segir Ingi Hans á Grundarfirði í tilefni af væntanlegum Evrópukosningum:
„Ég held samt að við ættum að leggja af krónuna. Það þarf ekki að vera neitt vesen við gætum nefnilega tekið upp túkallinn. Ég á fulla fötu af þeirri fínu mynnt sem hefur ekkert rýrnað í þau fjörutíu ár sem ég hef átt þá.“



