Verið velkomin á listamannaspjall með listamanna hópnum Open Group og sýningarstjóranum Mörtu Czyż.
Spjallið fer fram í klúbbi Listahátíðar í Iðnó fimmtudaginn 4. júní kl. 12:30!
Anton Varga og Yuriy Biley, meðlimir Open Group munu ásamt Mörtu ræða sýninguna Óður til gleðinnar sem þau opna í Nýlistasafninu þann 5. júní kl. 18:00! Heiðar Kári Rannversson safnstjóri Nýló mun leiða samtalið.
Óður til gleðinnar fjallar um reynslu listamannanna af stríðinu í Úkraínu og setur hana í samhengi við hugmyndir um evrópska samstöðu, ábyrgð og samfélag. Sýningin sameinar nokkur verk, þar á meðal nýtt verk sem unnið hefur verið sérstaklega fyrir sýninguna. Hún dregur fram spennuna milli hugsjóna um einingu og þess veruleika sem stríð, missir og útilokun skapa. Hvað er samfélag og hvernig verður það til á tímum óvissu? Á spjallinu verða verkin á sýningunni rædd ásamt spurningum um hlutverk menningar og myndlistar þegar kemur að þjóðaröryggismálum.



