Fæðingardagur Eliot Ness (1903-1950), lögregluforingja í Chicago sem barðist gegn spillingu innan lögreglunnar á bannárunum í Bandaríkjunum 1920-1933. Hann náði árangi með því að fella glæpaforingjann Al Capona vegna skattsvika en hann var umsvifamesti bruggari og dreifingaraðili áfengis á bannárunum.
Eliot Ness vakti þjóðarathygli á meðan á stóð og enn meiri varð frægð hans þegar gerðir vori framhaldsþættir fyrir sjónvarp um baráttu hans, The Untouchables, sem sýndir voru í Kanasjónvarpinuí Keflavík á meðan það var og hét og löngu síðar kvikmynd með sama nafni.