HILDUR SIGRAÐI KRABBANN

    “Fyrir fáeinum dögum urðu þau merku tímamót í mínu lífi að ég var formlega útskrifuð úr krabbameinseftirliti. Það er ekki gert fyrr en fimm ár hafa liðið, við góða heilsu, frá lokum meðferðar. Það var ekki sjálfgefið að þessum áfanga yrði náð – ég er ein af þeim heppnu – og ég þakka hvern einasta dag þau forréttindi að vera ennþá lifandi,” segir Hildur Björnsdóttir oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík og borgarstjóraefni:

    “Ég vona að mín saga geti verið einhverjum hvatning. Sögur þeirra sem tapa baráttunni við krabbamein eru reglulega sagðar – en sjaldnar sögur þeirra sem sigra stríðið.
    Fyrir nokkrum árum barðist ég fyrir lífi mínu – með þrjú lítil börn undir sjö ára aldri – í dag sækist ég eftir að verða borgarstjóri Reykjavíkur. Það er nefnilega hægt að rísa upp af botninum og láta drauma sína rætast.
    Auglýsing