ÁSTARJÁTNING FRIÐRIKS

    Friðrik: "Hún er að sýna okkur landsmönnum hvernig kaupin gerast á Eyrinni. "

    Guð hvað ég elska Sólveigu Önnu formann Eflingar,” segir Friðrik Indriðason blaðamaður og rithöfundur og leynir ekki aðdáun sinni:

    Hún er að sýna okkur landsmönnum hvernig kaupin gerast á Eyrinni. Eftir að SA tókst að sóla Villa og co í Starfsgreinasambandinu (plús VR) uppúr skónum í stuttum samning með smá dúsu, sem lifði ekki af næstu verðbólgumælingu, ákvað Efling að taka þessa SA klíku á beinið.

    Nú eru litlu íhaldsdrengirnir í SA að segja við Íslandshótelseigendur: Sko strákar ekki semja því við munum borga ykkur allan skaðann. Jafnvel allan 5 milljarða kr. sjóð okkar sem á að tryggja aðra atvinnurekendur (ekki bara nokkur hótel) fyrir skakkaföllum.

    Áfram Sólveig Anna.”

    Auglýsing