Íslendingar á Costa Blanca svæðinu á Spáni ganga nú að skagfirskum lambalærum í stórmörkuðum á aðeins 3.000 krónur íslenskar. Sama læri kostar ca. 12.000 krónur á Íslandi.
Mikil ánægja ríkir meðal íslensku nýbúanna á svæðinu sem fagna vörunni frá „skagfirska efnahagssvæðinu“ eins og þeir kalla það – sjá vef þeirra hér.





