
Félagsbústaðir hefja í dag framkvæmdir við byggingu átta íbúða húss fyrir fatlað fólk við Háteigsveg 59. Húsið er hannað með þarfir íbúanna í huga og er gert ráð fyrir að þangað flytji ungt fólk sem fram til þessa hefur búið í foreldrahúsum. Félagsbústaðir, sem eru í eigu Reykjavíkurborgar, eru eitt stærsta leigufélag landsins með tæplega 3100 félagslegar leiguíbúðir í höfuðborginni.
Húsið er 565 m2 staðsteypt fjölbýlishús á þremur hæðum við Vatnshólinn og Stýrimannaskólann.
Framkvæmdin er þróunarverkefni og við upphaf hönnunar voru sett markmið um að lækka kolefnisfótspor um að lágmarki 30% miðað við sambærileg viðmiðunarhús. Notast er við greiningar eins og lífsferilsgreiningu (LCA)* og líftímakostnaðargreiningu (LCC)* og endurnýtingu byggingarefna til að ná því markmiði. Allar útfærslur og efnisnotkun er hefðbundin en klæðning hússins verður úr endurnýttu timbri og unnið er með framleiðsluaðilum steypu við lækkun kolefnisspors. Nú þegar húsið er fullhannað lítur út fyrir að hægt verði að lækka kolefnissporið enn frekar.
Arkitekt hússins er Arnhildur Pálmadóttur hjá s.ap arkitektum sem hefur sérhæft sig í sjálfbærri hönnun. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður liðlega hálfur milljarður. Áætluð byggingarlok eru 1. september 2024.