…að Hilmar Hafstein Svavarsson sé loftskeytamaður sem kann líka tattú og opnar nú sýningu á myndverkum í veitingastofum Hannesarholts á Grundarstíg fimmtudaginn 5. apríl kl.16. Hilmar er fæddur 1940 og hefur daðrað við myndlistargyðjuna frá barnsaldri.
Hilmar hefur tekið þátt í samsýningum en þetta er fyrsta einkasýning hans og spannar 60 ára feril myndlistarmanns. Elstu myndina á sýningunni málaði hann 12 ára gamall, önnur var í vinnslu í fimmtíu ár. Hilmar vann við loftskeytastörf og verslunarrekstur um ævina en stundaði alla tíð myndgerð. Hann tók fjöldan allan af námskeiðum í Myndlista- og handíðaskólanum og Myndlistaskóla Kópavogs, auk þess sem hann sótti einkatíma hjá listamönnum á borð við Guðmundu Andrésdóttur, Sigfús Halldórsson, Hring Jóhannesson og Sverri Haraldsson. Grafíklist, skrautritun, myndskreytingar í bækur og tímarit og auglýsingar hafa einnig verið viðfangsefni Hilmars sem og húðflúr (tattoo) sem hann lærði hjá Helga Aðalsteinssyni. Listfengi Hilmars fær einnig að njóta sín í fluguhnýtingum.
Sýningin stendur í fjórar vikur eða til 2. maí.