STEFNUMÓT VIÐ SJÁLFIÐ

    Ásdís Sif Gunnarsdóttir opnar fyrstu sýningu ársins í Nýlistasafninu fimmtudaginn 27. janúar sem nefnist Stefnumót við sjálfið og listakonan lýsir sem fundarstað – vettvangur þar sem vídeóverk, ljósmyndir og gjörningar; augnablik frá mismunandi tímum á ferli Ásdísar, fléttast saman í margbrotna heild. Erkitýpur úr framtíðinni birtast á ögurstundu, grafnar minningar skjótast upp á yfirborðið og ólgandi frásagnir brjóta sér leið í gegnum myrkrið og inn undir húðina. Í verkunum sameinast ljóð og myndir, einkalíf og opinber rými, tækni og náttúra, óvissa og áhyggjuleysi.

    Ásdís Sif Gunnarsdóttir (f. 1976) býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BFA gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2000 og MA gráðu frá University of California, Los Angeles, árið 2004 með áherslu á vídeó- og gjörningalist. Ásdís Sif hefur frá upphafi ferils sýnt bæði á einka- og samsýningum víða innanlands og á alþjóðavettvangi, meðal annars í Listasafni Akureyrar, Hverfisgallerí, Listasafni Reykjavíkur, Centre Pompidou (París, Frakklandi) og Tate Gallery (London, Bretlandi).

    Auglýsing
    Deila
    Fyrri greinETTA JAMES
    Næsta greinÍSBJÖRGU LÉTT