SÆVAR KARL – NÁTTÚRAN ÖNNUR AÐ MORGNI EN KVÖLDI

    Litir og form Sævars Karls.

    Ég mála abstrakt, fæst við formin í náttúrunni, í þetta skiptið í garðinum mínum. Ég notfæri mér liti, rými og form, sem ég sé þar,” segir Sævar Karl klæðskeri, landsþekktur á árum áður sem helsti tískumógúll landsins þar til hann seldi veldi sitt, sneri sér að myndlist og opnar nú sýningu á verkum sínum í sal Sambands íslenskra myndlistarmanna.

    Sumarið á Íslandi er einstakt, dagarnir eru langir, náttúran sýnist önnur að morgni en að kvöldi. Ég mála úti þegar sólin skín þá, eru litirnir bjartari. Málverk sem tekst vel, er eins og gróðurinn, breytist frá degi til dags.”

    Sævar Karl stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavik, Listaháskóla Íslands,

    Kunstakademie BadReichenhall og Kunstakademie Kolbermoor, hefur haldið fjölda einkasÿninga en sýnir nú í fyrsta sinn í sal Sambands íslenskra myndlistamanna.

    Sýningin stendur til 28. ágúst.

    Auglýsing