Laugardaginn 21. september verður Herdís Egilsdóttir kennari og rithöfundur í Hannesarholt á Grundarstíg kl.14:00.
Hún ætlar að segja frá því hvernig Pappírs-Pési varð til, lesa upp úr bókunum um Pappírs-Pésa – sýna myndir af honum og spila lagið hans þannig að allir geti tekið undir sönginn um hann.
Börn og fullorðnir hafa hrifist af sögunum um Pappírs-Pésa um árabil og það verður ánægjulegt að hlusta á Herdísi lesa upp – enda er hún einstakur sögumaður. Enginn aðgangseyrir.