MATARVEISLA Í EFLINGU FRÁ 12 ÞJÓÐLÖNDUM

    Sólveig Anna formaður Eflingar æfði sig fyrir matarveisluna með því að laga kjötlausa kjötsúpu: "Góð þó ég segi sjálf frá."

    Efling býður áhugasömum félögum að vera með í skemmtiviðburðinum Matur og menning sem haldinn verður sunnudaginn 24. september. Á viðburðinum bjóða Eflingarfélagar upp á mat frá sínu upprunalandi. Þar er af nógu taka því Eflingarfélagar frá 12 mismunandi upprunalöndum hafa þegar skráð sig til að elda mat.

    Húsið verður opnað fyrir gestum klukkan 14:00 og mun viðburðurinn standa til klukkan 16:00. Tímasetningin er sunnudagur 24. september og staðsetning er Félagsheimili Eflingar, 4. hæð í Guðrúnartúni 1.

    Maturinn verður á boðstólum án greiðslu og ókeypis er á viðburðinn fyrir Eflingarfélaga, en það er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram. Leyfilegt er að taka með sér gesti. Skráið fjöldann sem kemur með ykkur í eyðublaðið hér að neðan (hámark 5).

    Auglýsing
    Deila
    Fyrri greinFENEYJAR OFMETNAR
    Næsta greinSMÁ INNSKOT