LISTASAFN ÍSLANDS Í VÉLSMIÐJU

Markús Ívarsson stofnandi Héðins og eitt af málverkum Kjarvals á sýningunni, Skipsbrotsmaður frá 1929.

Listin í smiðju Héðins er heiti á myndlistarsýningu Listasafns Íslands sem aðeins verður opin í einn dag, 1. október 2022, í vélasölum Héðins við Gjáhellu 4 í Hafnarfirði í tilefni af 100 ára afmæli vélsmiðju Héðins.

Á þessari einstæðu sýningu verða verk úr merkri gjöf Markúsar Ívarssonar (1884-1943) stofnanda Héðins til Listasafns Íslands en Markús var járnsmiður að mennt og ástríðufullur safnari verka eftir listamenn samtíma síns. Studdi hann þannig meðvitað ýmsa listamenn sem bjuggu við kröpp kjör.

Meðal listamannana sem eiga verk á sýningunni eru: Ásgrímur Jónsson, Brynjólfur Þórðarson, Eggert M. Laxdal, Eyjólfur Eyfells, Finnur Jónsson, Greta Björnsson, Guðmundur frá Miðdal, Guðmundur Thorsteinsson, Muggur, Gunnar Gunnarsson, Gunnlaugur Scheving, Höskuldur Björnsson, Jóhann Briem, Jóhannes S. Kjarval, Jón Stefánsson, Jón Þorleifsson, Karen Agnete Þórarinsson, Snorri Arinbjarnar, Svavar Guðnason, Sveinn Þórarinsson, Þorvaldur Skúlason og Þórarinn B. Þorláksson.

Þessi einstæða sýning verður aðeins opin í einn dag sem fyrr sagði, milli 13-17 laugardaginn 1. október.

Skip í Reykjavíkurhöfn – Jón Þorleifsson 1940.
Auglýsing