Þóra Björk Scram opnar sýningu sína, Andartak, fimmtudaginn 29. september klukkan 17-19 í Gallerí Göngum við Háteigskirkju. Um sýningu sína segir Þóra Björk:
–
„Eitt “Andartak” af mínu lífi í myndmáli. Málverk unnin með gleði á Ítalíu og þakklæti á Íslandi. Ég hef tæklað mörg verkefni í gegnum árin og nú hófst enn eitt nýtt verkefni í byrjun árs sem ég hef unnið mig í gegnum með minni listsköpun og gleði.
Lífsgleði endurspeglast í málverkunum mínum og með þeim hef ég fundið fyrir krafti, gleði og tilhlökkun að halda áfram að skapa þrátt fyrir hindranir sem orðið hafa á vegi mínum.“
–
Þóra Björk Schram útskrifaðist úr Myndlista- og handíðarskólanum 1992 en var einnig í námi Noregi og Ameríku. Hún hefur alltaf verið undir sterkum áhrifum frá íslenskri náttúru og íslensku veðráttunni í verkum sínum. Þetta er í fyrsta sinn sem Þóra Björk sýnir í Gallerí Göngum en hún hefur margsinnis sýnt verk sín bæði hér og erlendis. Sýningin stendur til 17. október og er opin meðan kirkjan er opin. Gengið inn skrifstofu megin.